top of page
Verkefnin á þessari síðu eru hugsuð fyrir börn á aldrinum 6-9 ára.
 
Hér er unnið nánar með lög sem oft eru sungin í leikskólum. Hefur höfundur útfært flesta leikina sjálfur með það í huga að þeir nýtist sem kennsluefni sem uppfyllir ákveðin viðmið í aðalnámskrá grunnskóla.

Leikið með lögin

Ég á lítinn skrítinn skugga

 

Markmið: Læra um ljós og skugga og nota leikræna tjáningu - samanber viðmið um grunnþætti menntunar, sjálfbærni og sköpun í aðalnámskrá grunnskóla (2013, bls.18-19 og 24). 

Aldur: 6-9 ára. 

Fjöldi: 5-6. 

Gögn: T.d. þrýstistöng sem passar í hurðargat, ljóskastari eða myndvarpi og hvítt lak. 

Hlutverk kennara: Leiðbeina og aðstoða börnin við að finna hugmyndir að því hvað skal gera. Gott er að láta áhuga barnanna ráða ferðinni. 

Lýsing: Skuggaleikhús. Hvítt tjald er strengt fyrir hurðarop og eitt barn fer hinum megin við tjaldið. Barnið leikur eitthvað (t.d. bókstaf eða dýr) fyrir samnemendur sína sem reyna að giska á hvað það er að gera. Sniðugt er að nota ákveðið þema, t.d. dýr eða bókstaf eða bara hvað sem nemendum og kennurum dettur í hug.

Ég á gamla frænku

 

Markmið: Hlustun, athygli, einbeiting – samanber viðmið um talað mál, hlustun og áhorf fyrir 4.bekk í aðalnámskrá grunnskóla (2011, bls 101).

 

Aldur: 6-9 ára.

 

Fjöldi: Eftir hentugleikum.

 

Gögn: Engin nauðsynleg gögn.

 

Hlutverk kennara: Fylgjast með og aðstoða.

 

Lýsing:  Einn er valinn til að vera stjórnandi (gamla frænkan). Fyrir yngri börnin er betra að kennarinn sé stjórnandinn. frænkan gefur ýmsar skipanir sem allir verða að hlýða, þ.e. ef stjórnandinn segir: ,,frænka segir ..." framan við skipun sína. Sleppi hann því og einhver framkvæmir samt skipunina er sá úr leik.

 

Dæmi um fyrirmæli: Frænka segir allir eiga að sveifla pilsinu hratt og snúa sér í hring (allir þátttakendur framkvæma þetta). Hægt er að vinna með þetta áfram þannig að frænkan lætur alla gera eins og hún gerir þegar hún gengur niður á torg en svo er hægt að fara út í það að vera með fyndnar og skemmtilegar aðferðir eins og t.d. klípa í nefnið á sér, boxa, vera hissa o.s.frv.

 

Leikurinn heldur áfram þar til enginn er eftir. Stjórnandinn reynir vitaskuld að hafa fyrirmælin sem skemmtilegust (allir eiga að klípa í nefið á sér, reka út úr sér tunguna, gretta sig, toga í tærnar á sér, boxa, rífa í hár sér, vera undrandi á svipinn o.s.frv.) (Leikjavefurinn, 2010).   

 

Heimild: Ingvar Sigurgeirsson. (e.d). Jósep segir. Sótt af: http://leikjavefurinn.is/josep-segir/

A ram sam sam

Markmið: Stærðfræði – mynstur, talning, flokkun og fjöldi auk skráningar – algebra – samanber hæfniviðmið í stærðfræði í aðalnámskrá grunnskóla (2011, bls. 215).

Aldur: 6-9 ára.

Fjöldi barna: 6-10 (gott að vera í minni hópum en gaman að prófa verkefnið margir saman).

Gögn: Engin nauðsynleg gögn. 

 

Hlutverk kennara: Taka þátt og aðstoða börnin eins og þarf. Verða börnunum út um gögn þegar við á.

Lýsing: Byrja á því að syngja lagið og biðja börnin svo um að slá lagið á líkamann án þess að syngja. Þau þurfa þá í sameiningu að ákveða hvaða hljóð á að vera slegið hvar á líkamann og telja hve oft á að slá hvern takt. Börnin þurfa að finna hvernig reglan er í mynstrinu og átta sig á takti. 

Gott að er að fá börnin til þess að skrá hjá sér fjölda og búa jafnvel til einfalt myndrit.

T.d. hægt að hafa: A - bringa, ram - magi, sam - læri, guli - rass, rafi - kinnar.

Þá myndi lagið vera nokkurnvegin svona:

;/; Bringa - magi - læri - læri, bringa - magi - læri - læri

Rass - rass - rass - rass - rass - magi - læri - læri ;/;


;/; Bringa - kinnar, bringa - kinnar

Rass - rass - rass - rass - rass - magi - læri - læri ;/;

Indjánar í skógi

Markmið: Leiklist – setja sig í spor annarra og vinna með einfalda leikmuni– unnið að hæfniviðmiðum samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla (2011, bls 145-147).

 

Aldur: 4-9 ára.

 

Fjöldi: Í samræmi við fjölda í lagi.

 

Gögn: Búningar og fylgihlutir sem henta söguþræðinum m.a. bogi, byssa, eitthvað tengt indjánum.

 

Hlutverk kennara: Aðstoða börnin við að setja upp leikrit. Leiðbeina og hjálpa eftir því sem á við. Útvega efnivið til þess að geta útbúið búninga og mögulega sviðsmynd.

 

Lýsing:  Í þessu verkefni eiga börnin að leika lagið. Kennarinn byrjar á að ræða innviði lagsins og fara yfir það hvað nemendur telja að þeir þurfi til þess að geta sett af stað leikrit. Söguþráðurinn í þessu lagi er nokkuð einfaldur og ætti að vera auðveldur í uppsetningu.

 

Söguþráður: Þarna eru á ferðinni indjánar sem fara í veiðiferð að veiða björn. Þeir byrja á því að gera sig tilbúna og fara svo af stað með veiðarfærin sín til þess að fella björninn. Í miðri sögu heyrast ýmis hljóð sem gerir indjánana hrædda og þegar björninn kemur fram verða þeir ennþá hræddari og hlaupa allir aftur heim til sín….nema einn sem er hugrakkur og fellir björninn, hamflettir hann og fer með hann heim til hinna indjánanna.

Allir þurfa að eiga vin

Markmið: Hópstyrking, vinátta, samvinna og rökhugsun – samanbera hæfniviðmið um sjálfstæði og samvinnu í aðalnámskrá grunnskóla (2011, bls. 89).

 

Aldur: 6-9 ára.

 

Fjöldi: 8-10 í hóp (eftir því sem hópurinn er stærri verður verkefnið erfiðara).

 

Gögn: Engin nauðsynleg gögn.

 

Hlutverk kennara: Taka þátt og aðstoða eftir þörfum. Vera til staðar en leyfa börnunum að spreyta sig.

 

Lýsing:  Þátttakendur standa mjög þétt saman. Þeim er síðan sagt að rétta út hendurnar og finna lófa til að halda í. Enginn má þó leiða manneskju sem er næst við hliðina. Þegar allir hafa gert þetta er kominn mennskur hnútur og eiga þátttakendur nú að vinna saman að því að leysa úr flækjunni og mynda hring án þess að sleppa takinu á þeim sem þeir leiða.

 

Heimild: Ingvar Sigurgeirsson. (e.d). Mennskur hnútur. Sótt af: http://leikjavefurinn.is/mennskur-hnutur/

Mýslukvæði

 

Markmið: Læra um ketti og mýs - samanber hæfniviðmið um náttúru Íslands í náttúrufræðikafla aðalnámskrár grunnskóla (2013, bls.174).

Aldur: 6-9 ára.

Fjöldi: Allir nemendur í bekknum.

Gögn: T.d. bækur um húsdýr, spendýr og eða efni af internetinu. Efniviður til að búa til skuggaleikhús.

 

Hlutverk kennara: Ræða við börnin um ketti og mýs. Hvernig dýr eru þau? Spendýr, húsdýr, villt dýr, eru þau vinir o.s.frv. Útveg nemendum viðeigandi gögn.

Lýsing: Skoða gögnin með börnunum  og ræða texta lagsins. Fá börnin svo til þess að útbúa skuggaleikhús. Þá þurfa börnin að útbúa sögupersónur úr hverju því sem þeim dettur í hug og flytja svo söguna um músina sem slapp frá kettinum þegar kötturinn festi sig í músarholunni.

© 2023 by Name of Site. Proudly created with Wix.com

  • Facebook Social Icon
  • Twitter Social Icon
  • Google+ Social Icon
bottom of page