Þessi verkefni eru hugsuð fyrir börn á aldrinum 4-6 ára.
Hér er unnið nánar með lög sem oft eru sungin í leikskólum. Höfundur útfærði flesta leikina sjálfur með það í huga að þeir nýtist sem kennsluefni sem uppfyllir ákveðin viðmið í aðalnámskrá leikskóla.
Ég á lítinn skrítinn skugga
Markmið: Læra um ljós og skugga - samanber viðmið í grunnþáttum menntunar um sjálfbærni og vísindi - eðli ýmissa krafta og birtingamyndir þeirra í umhverfinu í aðalnámskrá leikskóla (2011, bls 44).
Aldur: 4-6 ára.
Fjöldi: 5-6 innandyra. Hægt að vera með fleiri ef framkvæmt úti.
Gögn: Innandyra – myndvarpi eða vasaljós. Úti - sól eða vasaljós í rökkrinu.
Hlutverk kennara: Vera þáttakandi í leiknum með skuggana. Vera áhugasamur um það sem börnin koma með og skapa skemmtilegt og jákvætt andrúmsloft. Ræða um innihald textans og vinna með það sem í honum er t.d. tröll, stækkar, minnkar og margt fleira.
Lýsing: Byrjað er á því að syngja lagið og spá í því um hvað textinn fjallar. Spyrja börnin hvað þau vita um ljós og skugga. Hvað er ljós? Hvað er skuggi? Skuggi kemur af því að ljósið er stoppað þar sem það ferðast um loftið frá ljósgjafa. Leyfa börnunum svo að prófa að búa til skuggamyndir á vegg og sjá hvort að skugginn breytist eitthvað eftir því hvort börnin eru nálægt eða langt í burtu frá ljósinu.
Leikið með lögin
Ég á gamla frænku
Markmið: Setja sig í spor annarra - skapa og tjá upplifun með hreyfingu samanber viðmið í grunnþáttum menntunar heilbrigði og vellíðan ásamt sköpun og menning í aðalnámskrá leikskóla (2011, bls. 43 og 45).
Aldur: 4-6 ára.
Fjöldi: 6-8.
Gögn: Salur eða nægt rými til að hreyfa sig um. Gæti verið framkvæmt úti. Fatnaður – búningar í samræmi við innihald lagsins.
Hlutverk kennara: Vera þátttakandi og leiðbeina eftir þörfum.
Lýsing: Eftir að hafa sungið þetta lag eiga börnin að taka á sig mynd frænkunnar og leika hana ganga niður á torg. Þarna reynir á leiklistarhæfileika og tjáningu barnanna. Mikilvægt er að kennarinn taki fullan þátt í þessu með börnunum. Öll börnin gera í einu en hægt er að fá eitt og eitt barn til að sýna ef það er tilbúið til þess. Einnig er hægt að útfær þennan leik þannig að börnin velja sér einhvern fatnað sem þau eiga svo að sveifla um eins og frænka gerir.
Indjánar í skógi
Markmið: Setja upp leikrit – skapa og tjá upplifun með leiklist og njóta þess að taka þátt í skapandi ferli. Samanber viðmið um sköpun og menningu í aðalnámskrá leikskóla (2011, bls. 45).
Aldur: 4-6 ára.
Fjöldi: Í samræmi við fjölda í lagi.
Gögn: Búningar og fylgihlutir sem henta söguþræðinum m.a. bogi, byssa, eitthvað tengt indjánum.
Hlutverk kennara: Aðstoða börnin við að setja upp leikrit. Leiðbeina og hjálpa eftir því sem á við. Útvega efnivið til þess að geta útbúið búninga og mögulega sviðsmynd.
Lýsing: Í þessu verkefni eiga börnin að leika lagið. Kennarinn byrjar á að ræða innviði lagsins og fara yfir það hvað nemendur telja að þeir þurfi til þess að geta sett af stað leikrit. Söguþráðurinn í þessu lagi er nokkuð einfaldur og ætti að vera auðveldur í uppsetningu.
Söguþráður: Þarna eru á ferðinni indjánar sem fara í veiðiferð að veiða björn. Þeir byrja á því að gera sig tilbúna og fara svo af stað með veiðarfærin sín til þess að fella björninn. Í miðri sögu heyrast ýmis hljóð sem gerir indjánana hrædda og þegar björninn kemur fram verða þeir ennþá hræddari og hlaupa allir aftur heim til sín….nema einn sem er hugrakkur og fellir björninn, hamflettir hann og fer með hann heim til hinna indjánanna.
A ram sam sam
Markmið: Efla samvinnu og samhæfingu í hreyfingu samanber viðmið um heilbrigði og velferð í aðalnámskrá leikskóla (2011, bls. 43) – fjölbreytt hreyfing inni og úti.
Aldur: 4-6 ára.
Fjöldi: 6-8 börn (hægt að gera bæði með fleiri eða færri börnum).
Gögn: Salur eða svæði með góðu rými. Einnig hægt að gera úti.
Hlutverk kennara: Sýna börnunum hvernig á að gera og taka virkan þátt í leiknum með börnunum.
Lýsing: Tveir mismunandi leikir með sömu markmiðum.
Fyrri útfærsla.
Börnin sitja saman í hring. Samhliða því að syngja lagið eiga börnin að vinna saman að því að gera ýmsar hreyfingar.
-
A ram sam sam - klappa á læri á vini sínum sem situr á vinstri hönd.
-
Guli guli - ,,kitla" vin sinn sem situr á hægri hönd.
-
Arafi arafi - taka saman höndum og sveipla þeim upp og niður.
Seinni útfærsla.
Standa í hring og syngja lagið. Samhliða því að syngja eiga börnin að dansa í takt við það sem þau syngja.
-
A ram sam sam - taka skref til hægri.
-
Guli guli - snúa sér í hring.
-
A rafi a rafi - taka saman höndum og ganga inn í hringinn eins og í hókípóki.
Allir þurfa að eiga vin
Markmið: Efla félagsleg tengsl og samskipti samanber viðmið um læsi og samskipti ásamt heilbrigði og vellíðan í aðalnámskrá leikskóla (2011, bls. 42-43).
Aldur: 4-6 ára.
Fjöldi: Ca. 6 börn.
Gögn: Engin nauðsynleg gögn.
Hlutverk kennara: Taka þátt og ræða við börnum um vináttu og nauðsyn hennar.
Lýsing: Syngja lagið með börnunum og ræða svo um hvað textinn fjallar. Þegar búið að er að ræða við börnin fara allir í hring og haldast í hendur. Ætlunin með leiknum er að börnin sendi vináttustraum á milli sín. Hægt er að útfæra þetta á tvo mismunandi vegu. Annars vegar lyfta börnin höndunum upp til skiptis svo hendurnar gangi eins og bylgja. Hins vegar er hægt að láta börnin kreist hendur hvers annars. Það er minna áberandi og krefst þannig meiri einbeitingar og þess að börnin fylgist vel með hvar straumurinn er. Þegar straumurinn er kominn allan hringinn er hægt að tala um hvað það var notalegt að allir tóku þátt í þessu saman og hvað það skiptir miklu máli að eiga góðan vin sem hægt er að leita til.
Mýslukvæði
Markmið: Hreyfing og samvinna samanber viðmið um heilbrigði og vellíðan í aðalnámskrá leikskóla (2011, bls 43).
Aldur: 4-6 ára.
Fjöldi: 6-8.
Gögn: Engin nauðsynleg gögn.
Hlutverk kennara: Taka þátt í leiknum og aðstoða eftir þörfum. Vera til staðar en reyna að láta börnin stjórna ferðinni.
Lýsing: Eitt barn er valið til að vera kötturinn og annað til að vera mús. Börnin ganga í hring og syngja Mýslukvæðið.
Kötturinn og músin gera sig klár í slaginn, kötturinn fyrir utan hringinn og músin inni í hringnum. Þegar söngnum lýkur hefst eltingarleikur kattarins við músina. Börnin í hringnum reyna að aðstoða músina með því að hindra köttin í því að komast inn og út úr hringnum.
Gott er að gera ráð fyrir því að allir fái að vera köttur einu sinni og mús einu sinni.
Heimild: Elfa Lilja Gísladóttir. (2009). Hring eftir hring. Höfundur, Reykjavík