top of page

Markmið: Kenna börnunum lagið til að vinna með það síðar

Aldur: 2-4 ára

Fjöldi: Gott að vera ekki með fleiri en kanski 4-5 börn. En annars eftir hentugleikum.

Gögn: Gott að vera með myndir sem eru lýsandi fyrir innihald textans

Hlutverk kennara: Syngja lagið og vera með líflega viðveru. Sýna börnunum myndirnar samhliða því að syngja.

Lýsing: Mikilvægt er að reyna að hafa stundina á lífilegum nótum. Virkja börnin í því að taka þátt á þann hátt sem að þau eru fær um hverju sinni. Aðal atriðið er að endurtaka lögin oft þannig að börnin læri textann og lagið vel. Fyrst og fremst hafa gaman.

Lögin lærð

Gott er að byrja að vinna með lögin strax í upphafi leikskólagöngunnar þannig að börnin séu þeim kunnug og að auðveldara verði að vinna með þau þegar þau eru orðin eldri. Því er sama markmið fyrir öll lögin á þessum aldri. 

© 2023 by Name of Site. Proudly created with Wix.com

  • Facebook Social Icon
  • Twitter Social Icon
  • Google+ Social Icon
bottom of page