top of page
Hér má finna öll þau lög sem verkefnin eru unnin út frá ásamt upptöku af mér syngja þau eins og ég er vön.
Textana hef ég fundið á veraldarvefnum.
A ramm samm sa

Texti og lag: Þjóðlag frá Marokkó 

A ram sam sam, a ram sam sam
Guli guli guli guli guli ram sam sam

A ram sam sam, a ram sam sam
Guli guli guli guli guli ram sam sam

 

A rafi, a rafi
Guli guli guli guli guli ram sam sam

A rafi, a rafi
Guli guli guli guli guli ram sam sam

Heimild: Songs for Teaching. (e.d.). A ram sam sam. Sótt af http://www.songsforteaching.com/folk/aramsamsam.php

Ég á gamla frænku

Texti: Óþekktur

Lag: Ókunnur

Ég á gamla frænku

sem heitir Ingeborg.

Við eftir henni hermum

er hún gengur niður á torg.

 

:,:Og svo sveiflast fjöðrin

og fjöðrin sveiflast svo:,:

 

:,:Og svo sveiflast hatturinn

og hatturinn sveiflast svo:,:

 

:,:Og svo sveiflast sjalið

og sjalið sveiflast svo:,:

 

:,:Og svo sveiflast pilsið

og pilsið sveiflast svo:,:

 

:,:Og svo sveiflast frænkan

og frænkan sveiflast svo:,:

Heimild: Leikskólinn Álfaborg. (e.d.). Ég á gamla frænku. Sótt af

http://alfaborg.blaskogabyggd.is/songlog/leikskolalog/eg-a-gamla-fraenku/

Indjánar í skógi

Texti: Ókunnur

Lag: Ókunnur

                   
Það voru einn og tveir og þrír indíánar
fjórir og fimm og sex indjánar
sjö og átta og níu indjánar
tíu indjánar í skógi.

 
Allir voru með byssu og boga
allir voru með byssu og boga.
Allir voru svo kátir og glaðir,
þeir ætluðu að veiða björninn.

 
Uss!  Þarna heyrðu þeir eitthvað braka.
Uss!  Þarna heyrðu þeir fugla kvaka.
Fram kom stóri og sterki björninn
þá hlupu þeir allir heim til sín.

 
Þá hlupu einn og tveir og þrír indjánar
fjórir og fimm og sex indjánar
sjö og átta og níu indjánar
en einn indjáninn varð eftir.

 
Hann var ekki hræddur við stóra björninn.
Hann kom og skaut og hitti björninn.
Svo tók hann með sér allan haminn
og hélt heim til hinna níu.

 
Þá komu einn og tveir og þrír indjánar
fjórir og fimm og sex indjánar
sjö og átta og níu indjánar.
Allir að skoða björninn.

Heimild: Dagmar Þórdísardóttir. (e.d.). Sótt af http://mennta.hi.is/verkefni/lokaverkefni/v2008/dagmthor/annad/indjanariskogi.htm

Ég á lítinn skrýtinn skugga - sungið
00:00 / 00:00
Indjánar í skógi - sungið
00:00 / 00:00
Ég á lítinn skrýtinn skugga

Texti: Sigurður Júlíus Jóhannesson

Lag: Gunnar Þórðarson

Ég á lítinn, skrítinn skugga,
skömmin er svo líkur mér,
hleypur með mér úti og inni,
alla króka, sem ég fer.

Allan daginn lappaléttur
leikur hann sér kringum mig.
Eins og ég hann er á kvöldin
uppgefin og hvílir sig.

Það er skrítið, ha, ha, ha, ha!
hvað hann getur stækkað skjótt,
ekkert svipað öðrum börnum,
engin krakki vax svo fljótt.

Stundum eins og hugur hraður
hann í tröll sér getur breytt.
Stundum dregst hann saman,saman,
svo hann verður ekki neitt.

Heimild: Söngtextasíða Davíðs. (e.d.). Ég á lítinn skrýtinn skugga. Sótt af http://textar.midja.is/textar/prentv.asp?ID=657&Tran=

Ég á gamla frænku - sungið
00:00 / 00:00
Mýslukvæði

Texti: Þórhallur Hróðmarsson þýddi

Lag: Ungverks lag

Leit ég litla mús,

læðast inn í hús. 

Kötturinn að krækja í hana,

kannski verður fús.

 

Músin fékk sér mat,

matinn við hún sat.

Þegar kisi þarna birtist

þaut hún o’n um gat.

 

„Heyrðu heillin smá,“

 hvæsti kisi þá. 

„Í þig hef ég, heillin góða,

hugsað mér að ná“.

Hopp og hopp og hí,

hann varð samt af því, 

þótt fljótur væri að finna gatið

festi hann sig í því.

Heimild: Söngtextasíða Davíðs. (e.d.). Mýslukvæði. Sótt af

http://textar.midja.is/textar/prentv.asp?ID=1655&Tran=

Allir þurfa að eiga vin

Texti: Margrét Ólafsdóttir

Lag: Ókunnur

Allir þurfa’ að eiga vin,

allir þurfa’ að eiga vin.

Leggjum núna hönd í hönd

og hnýtum okkar vinabönd.

 

Þegar bjátar eitthvað á

allt það segja vini má,

ýta sorgum öllum frá

og aftur gleði sinni ná.

 

Allir þurfa að.........

 

Vináttan hún færir frið,

friður bætir mannkynið.

Öðrum sýnum ást og trú

og eflum vináttuna nú.

 

Allir þurfa að..........

 

Heimild: Söngtextasíða Davíðs. (e.d.). Allur þurfa að eiga vin. Sótt af http://textar.midja.is/textar/prentv.asp?ID=647&Tran=

Mýslukvæði - sungið
00:00 / 00:00
A ram sam sam - sungið
00:00 / 00:00
Allir þurfa að eiga vin - sungið
00:00 / 00:00

© 2023 by Name of Site. Proudly created with Wix.com

  • Facebook Social Icon
  • Twitter Social Icon
  • Google+ Social Icon
bottom of page