top of page

Um höfund

Oddný Guðríður Pálmadóttir

Ég heiti Oddný og er 31 árs gömul. Ég er gift Atla Má og saman eigum við þrjú börn fædd á árunum 2009-2015. Ég er fædd og uppalin í Holta- og Landsveit í Rangárvallasýslu en er bústett á Selfossi.

 

Árið 2004 lauk ég stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurlands og fór þá að vinna í leikskóla þar sem að mig langaði að kynnast starfinu á meðan ég áttaði mig á því hvað mig langaði að læra meira. Árið 2013 ákvað ég að skella mér í leikskólakennarafræði við Háskóla Íslands og hef stundað námið í fjarnámi samhliða vinnu og barnauppeldi síðustu ár. 

Vinnan við þessa heimasíðu er hluti af lokaverkefni mínu til B.Ed prófs. Ég ákvað að vinna verkefni um tónlist, leiklist og leik þar sem að ég hef mikinn áhuga á söng og syng mikið, bæði með mínum börnum og börnunum í leikskólanum.

© 2023 by Name of Site. Proudly created with Wix.com

  • Facebook Social Icon
  • Twitter Social Icon
  • Google+ Social Icon
bottom of page